header image
Heim
Karlakvöldshátíđ 11.11.11.
Skrifađ af Ritari   
föstudagur, 04 nóvember 2011

Framundan er mikil gleðihátíð hjá kórnum. Komið er að hinni árlegu karlakvöldshátið kórsins sem án efa er með skemmtilegri viðburðum á Suðurlandi og gott ef ekki landinu öllu.

Kraftmikill söngur, gamanmál og jafnvel heilu leikþættirnir eru frumsamdir og fluttir þetta kvöld svo ekki sé minnst á matinn sem er ekki beinlínis úr smiðju Laufeyjar Steingrímsdóttur hjá Matvælaráði en mjög saðsamur og bragðgóður.

Kórmeðlimir bjóða með sér karlkyns vinum og ættingjum á þetta kvöld en ef einhver er ekki með tengsl inn í kórinn en hefur mikinn áhuga á að koma er um að gera að hafa samband við Aðalstein í síma 898 1591 og þar sem Aðalsteinn hefur afar gott hjartalag er aldrei að vita nema hann útvegi viðkomandi miða.

Sjá nánari upplýsingar um hátíðina í þessari auglýsingu

 

 
Ađ lokinni tónleikaröđinni "Liszt í 200 ár"
Skrifađ af Ritari   
föstudagur, 04 nóvember 2011

Síðustu tónleikar kórsins í tónleikaröðinni  „Liszt í 200 ár“ voru haldnir í Selfosskirkju 2. nóvember fyrir fullu húsi. Þetta verkefni var afar skemmtilegt og krefjandi. Lögin sem kórinn flutti á tónleikunum höfðu ekki verið flutt áður hér á landi í það minnsta ekki með íslenskum textum. Heiðurinn af textagerðinni og þýðingunum á Gylfi Þorkelsson félagi í kórnum.

Lög Franz Liszt voru óvenjuleg á sínum tíma og skera sig úr jafnvel enn þann  dag í dag fyrir það að laglínan er síbreytileg og þannig eins og rússibani fyrir áheyrendur að hlusta á því það var alltaf eitthvað óvænt framundan og spennandi. Lögin voru engu að síður melódístk og falleg en einnig kröftug og áhrifarík. Þau voru því ekki alltaf auðlærð fyrir kórinn en síuðust smásaman inní haus kórfélaga og nú vilja þeir bara fá meira Liszt- eyrnakonfekt.

Til að gera lífshlaupi Liszt sem best skil var sett upp veggspjalda sýning með myndum og frásögnum úr lífi meistarans. Skoðuðu gestir sýninguna fyrir tónleika og í hléinu. En mest fræðandi og skemmtilegust voru þó kynningar Arndísar Bjarkar Ásgeirsdóttur, dagskrárgerðarmanns á RÚV. Hún gerði lífi og tónsmíðum listamannsins góð skil á lifandi og skemmtilegan hátt milli atriða. Kunnum við kórfélagar henni miklar þakkir fyrir hennar framlag.

Liszt var afar fjölhæft tónskáld og kom víða við í þeim efnum, meðal annars var hann höfundur tónaljóðsins sem er sinfónískt form þar sem ljóð eða saga er sett í tóna. Kórinn var svo heppin að fá stórsöngvarann Ágúst Ólafsson, baritón, til að sjá um flutning á nokkrum einsöngslögum eftir Liszt sem hann skilaði að sjálfsögðu með glæsibrag við undirleik Miklósar Dalmay píanóleikara.

Miklós flutti nokkur einleikspíanóverk eftir Liszt sem eru ekki á allra færi þar sem Liszt var og er jafnvel enn talinn færasti píanóleikari sem fram hefur komið. Nema að Miklós sé nú búinn að slá honum við?

Unglingakór Selfosskirkju spilaði stóra rullu í þessari tónleikaskorpu kórsins og söng á öllum tónleikunum. Fluttu þau nokkur gullfalleg kórlög eftir Liszt og uppskáru mikið klapp fyrir, einnig sungu þau nokkur lög saman með nokkrum félögum úr kórnum.

Ónefndur er þó hlutur stjórnandandans Editar Molnár sem hefur af sinni einstöku elju og áhuga keyrt þetta verkefni áfram og hefur sá undirbúningur hjá henni staðið í nokkur ár. Við karlakórsfélagar erum að sjálfsögðu afar þakklátir og stoltir að hafa slíka fagmanneskju í liði okkar.

Að lokum vill Karlakór Hreppamanna koma á framfæri kæru þakklæti til allra sem sóttu tónleikana.

Hér má sjá nokkrar myndir sem teknar voru á tónleikunum í Salnum í Kópavogi.

                                                                                                                                                    ÞJ.

 
Liszt í 200 ár
Skrifađ af Ritari   
föstudagur, 07 október 2011

Liszt í 200 ár

Þá er kórstarfið hafið að fullum krafti og æft grimmt fyrir fyrirhugaða tónleikaröð kórsins sem verður um mánaðamótin okt. - nóv. (sjá auglýsingu ). Tónleikarnir  eru auglýstir undir fyrirsögninni „Liszt í 200 ár" þar sem þeir eru tileinkaðir ungverska tónskáldinu Franz Liszt sem var óumdeilt einn fremsti píanóleikari sinnar kynslóðar og af mörgum talinn sá fremsti sem fram hefur komið í heiminum.  Liszt var einnig afkastamikið tónskáld og áhrifamikill kennari. Má segja að Liszt, sem var einkar glæsilegur á velli hafi verið frægasta poppstjarna sinnar kynslóðar.

 lisztcar_lightbox-copy.jpg

Eftirfarandi frásögn af tónleikum hans gæti  alveg eins átt við Bítlana eða einhverjar vinsælustu poppstjörnurnar dagsins í dag:

„Þegar Liszt hóf að leika á slaghörpuna köstuðu hefðarfrúrnar skartgripum sínum og gimsteinum upp á sviðið, í stað blóma. Þær æptu í æðislegri hrifningu og stundum leið jafnvel yfir þær. Aðrar æddu að sviðinu, til þess að sjá sem bezt andlit hins mikla snillings. 

liszt-copy.jpg

Þær slógust um grænu hanzkana sem hann hafði af ásettu ráði skilið eftir á slaghörpunni. Ein frúin náði í vindilstubbinn, sem Liszt hafði fleygt frá sér bak við leiksviðið. Hún bar hann í barmi sínum til dauðadags. Aðrar konur komust yfir aðra helgigripi, svo sem slitna strengi úr slaghörpunni, sem hann hafði leikið á. Þessir hlutir voru settir í ramma og tilbeðnir".

 

Skáldið  Heinrich Heine segir frá hljómleikum sem hann hlustaði á, þar sem tvær ungverskar greifafrúr börðust um neftóbaksdósir Liszts, vörpuðu hvor annari niður og flugust á , þangað til þær voru orðnar magnþrota.


 

Til að gefa sem besta mynd af tónlistarsnillingnum Franz Liszt þá munu auk kórsins koma fram Miklós Dalmay píanóleikari, Ágúst Ólafsson baritón og Unglingakór Selfosskirkju. Kynnir á tónleikunum verður Gnúpverjinn Arndís Björk Ásgeirsdóttir, frá Sandlækjarkoti og dagskrárgerðarmaður á RÚV. Hún er einnig sérfræðingur í Liszt og hefur í þáttum sínum á RÚV gert honum góð skil. Á tónleikunum mun hún uppfræða gesti um lífshlaup Liszts á milli atriða.

Sýning í máli og myndum um Franz Liszt verður sett upp á hverjum tónleikastað. Fyrstu tónleikarnir verða á Flúðum á sjálfan afmælisdag skáldsins 22. okt. og í tilefni þess verður boðið þar uppá vöfflukaffi. 

 
Af blönduđum karlakórum og öđrum.
Skrifađ af Ritari   
sunnudagur, 08 maí 2011

Þá er skemmtilegum söngvetri lokið og fjórtándu vortónleikar kórsins að baki. Kórinn tók endasprettinn með stæl og hélt flotta tónleika í Félagsheimilinu en einnig í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Á prógramminu voru hvoru tveggja klassísk karlakórslög og melódísk kórverk eftir meistara Franz Liszt. Lögin eftir Liszt voru sýnishorn úr söngskrá næsta vetrar þar sem kórinn mun strax næsta haust byrja vetrarstarfið með tónleikaröð á Selfossi, í Reykjavík og á Akureyri. Lesa nánar  ...

 

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 Nćsta > Endir >>

Úrslit 1 - 5 af 42
Myndir
kkh_vor2008 010
Á döfinni
Engir atburđir
Dagatal
« < Febrúar 2012 > »
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3