header image
Heim arrow Stjórnandi
Stjórnandi PDF Prenta Rafpóstur

edit_molnar2008m.jpgEdit Molnár er stjórnandi Karlakórs Hreppamanna og hefur verið það frá stofnun hans. Hún stundaði nám í kórstjórn 1983-1988 við Franz Liszt tónlistarháskólann í Budapest.

Edit kom frá Ungverjalandi til að starfa á Íslandi haustið 1994. Hún var organisti Hrunaprestakalls og stjórnaði kórum Flúðaskóla. Edit er deildarstjóri við Tónlistarskóla Árnesinga og stjórnar barnakórum Selfosskirkju. Í sjö ár samfellt var hún stjórnandi Samkórs Selfoss. Hún var einn aðalhvatamaður að stofnun Karlakórs Hreppamanna og undir hennar stjórn hefur kórinn vaxið og dafnað svo sem raun ber vitni.

Fjölmargt fleira mætti nefna sem hún tekur sér fyrir hendur, til stuðnings menningarlífi í heimabyggð sinni. Það er því ekki ofsagt þótt fullyrt sé að Edit Molnár setji um þessar mundir sterkan svip á tónlistarlíf Árnesinga.