header image
Heim arrow Píanóleikari
Píanóleikari PDF Prenta Rafpóstur

miklosMiklós Dalmay nam píanóleik við Bartók Konservatorium og Franz Liszt Academy of Music í Budapest og lauk einleikaraprófi 1987.  Hann stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Stokkhólmi 1989-1991.  Hann hlaut einleikaraverðlaun Konunglegu sænsku listaakademíunnar.

Mikós hefur hlotið margvísleg verðlaun og viðurkenningar fyrir píanóleik á alþjólegum vettvangi m.a. The European Piano Competition 1992.  Hann hefur einnig haldið tónleika víðs vegar um Evrópu, Bandaríkin og Kanada og hljóðritað geisladisk með píanóverkum Beethovens.

Árið 1994 flutti Miklós til Íslands ásamt fjölskyldu sinni og hefur hann síðan þá verið einn virkasti einleikari landsins.  Hann bar sigur úr býtum í Tónvakanum, tónlistarkeppni Ríkisútvarpsins, árið 1996.

Hann spilar reglulega með virtustu hljóðfæraleikurum og einsöngvurum landsins og hefur komið fram sem einleikari með mörgum helstu hljómsveitum heimalands síns og Sinfóníuhljómsveit Íslands.