header image
Heim arrow Fréttir arrow Kötlumót arrow Undirbúningsnefnd vegna Kötlumóts.
Undirbúningsnefnd vegna Kötlumóts. PDF Prenta Rafpóstur
 

Efni: Upplýsingabréf frá undirbúningsnefnd vegna Kötlumóts 16. október n.k..

Undirbúningsnefnd Kötlumóts hefur haldið nokkra fundi til undirbúnings tónleikanna. Á síðasta fundi sem haldin var 9. mars s.l. voru rædd mikilsverð atriði  vegna mótsins. Þann fund sat einnig formaður Kötlu, Valdimar Bragason og Edit Molnár söngstjóri. Ljóst er að allir aðildarkórar hafa tilkynnt þátttöku, alls 14 kórar og u.þ.b. 600 söngmenn.

Stefnt er að samæfing kóranna hefjist kl. 10.00 árdegis, laugardaginn 16. október. Áætlað er að mótsetning hefjist að loknum hádegisverði kl. 13.30. Eftir setningu mótsins  syngja kórarnir  hver í sínu lagi. Gert er ráð fyrir að kórarnir syngi í tveimur til þremur húsum á Flúðum. Áætlaður tími til flutnings er 15. mín. Inn í þeim tíma er gert ráð fyrir að kórarnir komi sér fyrir, flytji lög og hverfi af sviði.

Edit kynnti starf stjórnendateymis sem í eru auk hennar Friðrik S. Kristinsson, stjórnandi Karlakórs Reykjavíkur og Árni Harðarson, stjórnandi Karlakórsins Fóstbræðra. Þau hafa valið eftirfarandi lög til sameiginlegs flutnings. 

Við setningu:

Hver á sér fegra föðurland. Emil Thoroddsen / Hulda                                    

Lofsöngur.  Sigurður Ágústsson / Matthías Jochumsson

Í lok tónleika:

Þú álfu vorrar yngsta land, Sigfús Einarsson / Hannes Hafstein                            

Sefur sól hjá Ægi. Sigfús Einarsson/Sigurður Sigurðsson frá Arnarholti, 

Ár vas alda. Íslenskt þjóðlag útsetning Þórarinn Jónsson.Texti:Úr Völuspá 

Brennið þið, vitar. Páll Ísólfsson / Davíð Stefánsson                                                     

Suðurnesjamenn. Sigurður Ágústsson / Ólína Andrésdóttir 

Ó, Guð vors lands: Sveinbjörn Sveinbjörnsson / Matthías Jochumsson  

Stórsveit Suðurlands hefur verið ráðin til þess að leika undir í þremur lögum. Katla mun sjá um útgáfu á nótnahefti með sameiginlegum lögum og sendir þau út til þátttökukóranna um leið og prentun er lokið.   Gert er ráð fyrir að dagskrá verði fyrir maka meðan á samæfingu stendur. Þátttökugjald verða innheimt af kórunum. Bendum á ýmsar upplýsingar í áður sendu bréfi þar sem boðað er til mótsins.

Gert er ráð fyrir lokahófi en það verður auglýst síðar.

 

Flúðum 11. mars 2010

__________________________________

Magnús H. Sigurðsson, formaður undirbúningsnefndar

 
Nćsti >