header image
Heim
Sungið á Þingvöllum
Skrifað af Ritari   
fimmtudagur, 02 september 2010

 

karlakor01 (2) copy.jpg

 

 

 

 

 

 

 

 

 


Formaður Skógræktarfélags Íslands fór þess á leit við formann kórsins á vormánuðum að við myndum syngja á Þingvöllum í tilefni 80. ára afmælis félagsins þann 29. ágúst. Það var auðsótt mál ef næðist í nægilega marga söngmenn þar sem formlegar æfingar væru ekki hafnar á þessum tíma. Gerð var liðskönnun með því að kalla á æfingu fimmtudaginn 26. ágúst, þá var ljóst að þetta gæti gengið og æfð upp nokkur lög sem við kunnum vel. Mættu menn allvel stemmdir og uppábúnir í Furulund á Þingvöllum þar sem formleg skógrækt hófst svo að segja á Íslandi, var þar samankominn allnokkur hópur fólks sem tengdist skógrækt á Íslandi. Var þaðan gengið í halarófu uppí Almannagjá þar sem formleg dagskrá hófst með ávarpsorðum séra Gunnþórs Ingasonar og Magnúsar Gunnarssonar formanns Skógræktarfélags Íslands. Kórinn söng á milli ávarpa ræðumanna, fyrst „Látum sönginn hvellan hljóma" og síðasta lagið var „Þú álfu vorrar yngsta land".

Það er skemmst frá því að segja að söngurinn tókst bara nokkuð vel þrátt fyrir óhagstætt veðurfar þar sem það skúraði á mannskapinn nánast allan tímann og ávörp og ljóðaflutningur teigðust nokkuð lengur en ráð var fyrir gert. Eftir sönginn var boðið uppá gott kaffi og meðlæti sem var þegið með þökkum. Voru sumir svo fegnir að fá heitt kaffi að þeir ræddu um að það hefði kannski verið rétt að færa Skógræktarfélaginu afmælisgjöf frá kórnum og kom strax með tillögu um að útbúa gjafabréf þar sem félagið fengi rollu að eigin vali frá einhverjum úr kórnum, nóg væri beitin á Þingvöllum. Málið er í nefnd.

En senn hefjast formlegar æfingar kórsins og gert er ráð fyrir að fyrsta æfingin verði þriðjudaginn 14. september kl. 20:30 . Ekki þarf að fjölyrða um mikilvægi þess að allir mæti sem best frá fyrstu æfingu því að æfa þarf lög sem syngja á á hinu mikla Kötlumóti sem er framundan í október. Kötlunefnd hefur unnið mjög ötlullega undir stjórn Magnúsar í Birtingaholti í sumar og stefnir í met þátttöku og allt að 700 söngmenn!!

 
Vel heppnuð ferð í Skagafjörðinn
Skrifað af Ritari   
miðvikudagur, 12 maí 2010

holar3.jpg

Við viljum koma á framfæri kæru þakklæti til Skagfirðinga fyrir höfðinglegar móttökur.

Sérstakar þakkir fær Karlakórinn Heimir fyrir að bjóða okkur að taka þátt í Sæluvikutónleikunum í Miðgarði.

Hér má lesa ferðasöguna.

 
Að loknum vortónleikum
Skrifað af Ritari   
þriðjudagur, 27 apríl 2010

Vortónleikar Karlakórsins tókust í alla staði vel.

Sungið var í Selfosskirkju þriðjudagskvöldið 13. apríl fyrir fullu húsi og síðan á Flúðum laugardagskvöldið 17. apríl. Þar fylltu tónleikagestir félagsheimili okkar Hreppamanna og ekki var annað að heyra en að gestir skemmtu sér vel svo ekki sé talað um þegar einsöngvarinn steig á svið, stórtenórinn Jóhann Friðgeir. Söng hann nokkur lög með kórnum og einnig söng hann einn við undirleik Miklósar. Erum við karlakórsmenn afar ánægðir með að hafa fengið þennan frábæra einsöngvara til að syngja með okkur á þessum tónleikum.

Næsta verkefni kórsins, sem óhætt er að segja að við félagarnir séum orðnir nokkuð spenntir fyrir, er að þiggja boð Heimismanna og syngja með þeim í Miðgarði 1. maí í lok Sæluviku Skagfirðinga. Er það víst að við Sunnlendingar munum eiga skemmtilega helgi framundan. 

Hér má sjá myndir frá tónleikunum í Selfosskirkju sem Guðjón Emilsson tók.

selfosskirkja4-copy.jpg

selfosskirkja3-copy.jpg

 
Vortónleikar 2010
Skrifað af Ritari   
fimmtudagur, 08 apríl 2010

Karlakór Hreppamanna heldur tónleika í Selfosskirkju þriðjudaginn 13. apríl og í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum laugardaginn 17. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30.

Einsöngvari verður Jóhann Friðgeir Valdimarsson stórtenór.

Sjá nánar auglýsingu.

Aðgangseyrir kr. 2.500,-.

Allir hjartanlega velkomnir.

karlakor_1-copy.jpg
 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>

Úrslit 1 - 5 af 31
Myndir
IMG_0041
Á döfinni
þri sep 14 @08:30eh - 10:30eh
Fyrsta söngæfing vetrarins
fös sep 17 @03:00eh - 11:00eh
Útreiðartúr
Dagatal
« < September 2010 > »
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2