|
Skrifað af Ritari
|
|
föstudagur, 11 desember 2009 |
|
Síðasta æfing fyrir jól verður þriðjudaginn 15. desember. Takið eiginkonurnar með og eigum saman notalega kvöldstund. Létt jólastemmning, jólalög, jólaglögg og piparkökur.
Jólakveðja,
Stjórnin
|
|
|
Skrifað af Ritari
|
|
miðvikudagur, 04 nóvember 2009 |
|
Hið árlega Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna verður haldið í félagsheimilinu á Flúðum föstudagskvöldið 13. nóvember 2009. Dagskráin verður með nokkuð hefðbundnu sniði.
Þátttaka tilkynnist til kórfélaga fyrir þriðjudaginn 10. nóvember.
Húsið opnar kl. 20:00.
Aðgangseyrir kr. 3.500,-.
Sjáumst hressir og kátir
|
|
|
Karlakóramót 2009 - Perlur Sunnlenskrar tónlistar |
|
Skrifað af Ritari
|
|
fimmtudagur, 29 október 2009 |
|
Laugardaginn 31. október verður haldið Karlakóramót í Íþróttahúsi Vallaskóla, Selfossi.
Á tónleikunum munu Karlakór Rangæinga, Karlakór Selfoss og Karlakór Hreppamanna
flytja verk Sunnlenskra höfunda. Tónleikarnir eru styrktir af Menningarráði Suðurlands.
Hér má nálgast söngskránna.
Tónleikarnir hefjast kl. 16:00.
Aðgangseyrir kr. 1000,-.
Allir velkomnir.
|
|
|
Fyrsta söngæfing vetrarins |
|
Skrifað af Ritari
|
|
þriðjudagur, 15 september 2009 |
|
Fyrsta söngæfing karlakórsins verður þriðjudaginn 15. september kl. 20:30 í Félagsheimilinu á Flúðum. Nú er upplagt fyrir þá sem ekki eru nú þegar í kórnum en tóku lagið í réttunum að kíkja á fyrstu æfinguna.
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
|
| Úrslit 11 - 15 af 31 |