header image
Heim
Tónleikar í Selfosskirkju
Skrifađ af Ritari   
miđvikudagur, 10 júní 2009

 Lokatónleikar Karlakórs Hreppamanna voru haldnir í Selfosskirkju laugardaginn, 9. maí sl. Á tónleikunum söng Egill Ólafsson með kórnum og Stefán I. Þórhallsson lék undir á slagverk, auk þess sem undirleikarinn, Miklós Dalmay, stóð sína vakt sem vera ber. Hér var um að ræða nánast sömu söngdagskrá og á Vortónleikunum að Flúðum í lok apríl. Fyrst söng kórinn nokkur falleg, hefðbundin íslensk sönglög en sneri sér svo m.a. að Lokakór úr Þrymskviðu Jóns Ásgeirssonar og Hermannakór úr Il Trovatore eftir Giuseppe Verdi. Þá flutti kórinn fjögur lög eftir Miklós Dalmay við ljóð Gylfa Þorkelssonar en einnig söng Egill Ólafsson einsöng í einu lagi eftir þá félaga. Egill söng svo nokkur fleiri lög af sinni alkunnu snilld og má líkja flutningi hans og kynningu milli laga við gjörning, þar sem hann náði einstöku sambandi við áheyrendur. Lokahnykkurinn á tónleikunum var sameiginlegur flutningur Egils og kórsins á nokkrum Stuðmannalaga. Mjög góð aðsókn var að tónleikunum og góður rómur gerður að flutningnum. Selfosskirkja var þéttsetin ánægðum tilheyrendum, enda kórinn í stuði.     Að loknum tónleikum héldu svo kórfélagar ásamt mökum sínum á Rauða húsið á Eyrarbakka, þar sem tekið var hraustlega til veitinga og flutt óborganleg „heimasmíðuð“skemmtiatriði í bland.                                                                                                          
 
Söngveisla framundan
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir   
mánudagur, 20 apríl 2009

kaelak_hreppam.18.4.09_022.jpgÞað má segja að uppskeruhátíð hafi verið hjá Karlakór Hreppamanna s.l. laugardagskvöld 18. apríl. Þá voru vortóneikar kórsins. Edit Molnár stýrði sínum mönnum af öryggi og snilld af vanda. Ekki skemmdi fyrir hinn fimi píanóleikur Miklósar Dalmay en þau hjón hafa stjórnað kórnum frá upphafi en 11 ár eru frá því að kórinn var stofnaður. Fyrri hluti tónleikanna var hefðbundinn þar sem sungin voru lög m.a. eftir Sigurð Ágústsson, tónskáld í Birtingaholti, Rússnesk lög o.fl. Það færðist fjör í leikinn eftir hlé. Þá steig á stokk, Stuðmaðurinn Egill Ólafsson.   Flutningur hans var frumlegur og skemmtilegur og ýmist söng hann einn eða með karlakórnum. Á efnisskránni  voru m.a. lög eftir Miklós Dalmay við texta eftir kórfélagann Gylfa Þorkelsson. Þar kom einnig við sögu bráðfimur trymbillinn, Stefán Þórhallsson. Þá söng Egill Bandarísk söngleikjalög og síðan  var endað með eldhressum Stuðmannalögum. Kynnir kvöldsins var Jóhannes Sigmundsson í Syðra Langholti.  Formaður kórsins er Aðalsteinn Þorgeirsson bóndi á Hrafnkelsstöðum.  Um 300 manns sóttu tónleikana. Tónleikarnir verða endurteknir í Selfosskirkju 9. maí n.k. kl. 17.00. Söngveislunum í uppsveitunum er ekki lokið þar sem Vörðukórinn mun halda tónleika í Félagaheimili Hrunamanna á Flúðum síðasta vetrardag þann 22. apríl n.k. kl. 20.30 og Uppsveitasystur munu halda sína tónleika  ásamt fleiri kórum í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum 30. apríl n.k. kl. 20.30. 

 
Vortónleikar
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir   
mánudagur, 13 apríl 2009
auglysing2009.gif
 
Vortónleikar Karlakórs Hreppamanna
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir   
mánudagur, 30 mars 2009

Verða á Félagsheimilinu á Flúðum 18. apríl 2009.

Söngskráin er fjölbreytt.

Með á tónleikunum verða Egill Ólafsson "Stuðmaður" og Stefán Þórhallsson slagverksleikari.

Takið daginn strax frá svo þið missið ekki af þessum einstaka viðburði fyrir vorverkin

 
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Nćsta > Endir >>

Úrslit 16 - 20 af 31
Myndir
syning_budapest 055
Á döfinni
miđ sep 15 @08:30eh - 10:30eh
Fyrsta söngćfing vetrarins
lau sep 18 @03:00eh - 11:00eh
Útreiđartúr
Dagatal
« < September 2010 > »
S M Ţ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 1 2