|
Jólatónleikar í Skálholtskirkju |
|
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir
|
|
sunnudagur, 18 janúar 2009 |
|
Karlakór Hreppamanna ásamt Eldri barnakór og Unglingakór Selfosskirkju hélt jólatónleika þriðjudagskvöldið 16. desember. Tónleikarnir byrjuðu klukkan 20:30 og var kirkjan þéttsetin. Stjórnandi kóranna þriggja er Edit Molnár og píanóleikari Miklós Dalmay. Tónleikarnir tókust mjög vel og er tónleikagestum þakkað fyrir komuna.
Kynnir kvöldsins var Kristinn Ólason, rektor Skálholtsskóla.
Fjórir nemendur úr Tónlistarskóla Árnessýslu spiluðu á fiðlur Pastorale úr jólakonsert eftir Archangelo Correlli við undirleik Miklósar Dalmay. Stúlkurnar heita Bergþóra Rúnarsdóttir, Anna Rut Arnardóttir, Eva Þorfinnsdóttir og Margrét Rún Símonardóttir.
Séra Eiríkur Jóhannsson prófastur í Hruna og meðlimur karlakórsins flutti hugvekju.
Unglingakór Selfosskirkju flutti m.a. Ave Maria eftir Giulio Caccini. Unglingakórinn og Eldri barnakór Selfosskirkju sungu m.a. saman Hvít er borg og bær. Þær Ragnheiður Inga Sigurgeirsdóttir, Bryndís Arna Þórarinsdóttir, Sigrún Drífa Þorfinnsdóttir og Alexandra Ásgeirsdóttir sungu einsöng undir diggri stjórn Editar. Þær Guðbjörg Hrönn Tyrfingsdóttir, Ragnheiður Inga Sigurgeirsdóttir og Bergþóra Rúnarsdóttir sungu einsöng með Karlakórnum í laginu Allsherjar Drottinn. Jón Gunnar Úlfarsson sá um slagverk í laginu Jingle Bells Medley - jólasyrpu í útsetningu Ernie Rettino.
Tónleikunum lauk með því að allir kórarnir þrír sungu saman lagið Ó helga nótt eftir Adolphe Adam. Textann gerði Sigurður Björnsson. Miklós Dalmay og Fiðluhópurinn léku undir.
Myndir frá tónleikunum má sjá hér.
|
|
|
Jólatónleikar Karlakórs Hreppamanna í Skálholtskirkju |
|
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir
|
|
mánudagur, 08 desember 2008 |
|
Þriðjudaginn 16. desember kl: 20:30 í Skálholtskirkju.
|
|
|
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir
|
|
sunnudagur, 20 apríl 2008 |
|
Vortónleikar Karlakórs Hreppamanna verða haldnir laugardaginn 26. apríl.
Sjá Auglýsing 2008
|
|
|
Skrifađ af Elín JónaTraustadóttir
|
|
mánudagur, 04 febrúar 2008 |
|
Meðfylgjandi er könnun sem gerð er af nemendum viðskiptafræði í Háskólanum í Reykjavík í áfanganum Hagnýt tölfræði. Okkur þætti vænt um ef þið gæfuð ykkur tíma til að svara könnuninni fyrir okkur. Tilgangur könnunarinnar er að komast að því hvort kórstarf hafi áhrif á sjálfsöryggi fólks og hvetji það jafnvel til söngnáms. Þetta er örstutt könnun, aðeins 15 spurningar, og ætti ekki að taka meira en 2-3 mínútur að svara. Athugið að fyllsta trúnaðar er gætt og svör verða ekki rakin til einstakra þátttakenda. Þátttaka þín í þessarri könnun er okkur mikilvæg og viljum við því þakka þér kærlega fyrir að taka þátt.
Vinsamlegast smellið með músinni á hlekk hér að neðan til að taka þátt í könnuninni eða afritið (copy/paste) í vafrann (broswer) ykkar.
http://www.createsurvey.com/c/63022-hfVpm8/
Með kveðju, Hafdís Helga og Aðalheiður
|
|
|
|
<< Byrja < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Nćsta > Endir >>
|
| Úrslit 21 - 25 af 31 |